
Föstudaginn 28. maí fengum við Grænfánann afhentan í annað sinn. Þennan dag var bæði nemendasýning og Grænfánahátíð hjá okkur. Hrefna Sigurjónsdóttir líffræðingur sem er stjórnarkona í Landvernd og Guðbjartur Hannesson þingmaður og formaður fjárlaganefndar mættu á svæðið. Umhverfisnefndin stóð upp og sagði fólki frá því sem þau hafa verið að gera til þess að fá þennan fána aftur. Hrefna og Guðbjartur voru mjög ánægð með okkar störf og afhentu okkur viðurkenningarskjal og Grænfánann sem krakkarnir í umhverfisnefndinni tóku við. Magnús skólastjóri sagði nokkur vel valin orð. Krakkarnir aðstoðuðu því næst Togga húsvörð við að draga fánan að húni og að því loknu voru sungin þrjú lög og svo fengu allir skúffuköku og djús. Hátíðin tókst mjög vel í alla staði og stóð umhverfisnefndin sig með prýði. Einnig var mjög ánægjulegt að sjá hve margir gestir voru mættir til að fylgjast með. Vonandi höfum við með þessu náð að vekja einhverja til umhugsunar um umhverfisvernd.


