Þá eru komnar myndir af skólapeysunum okkar.
Hugmyndin hefur verið í þróun frá í marslok þegar forráðamenn í 4.bekk ræddu þessa hugmynd og við fengum að þróa hana í þá átt að fá framleiðendur til að hjálpa okkur að búa til okkar útgáfu að peysu.
HENSON var það fyrirtæki sem greip hugmyndina á lofti með eftirfarandi útkomu:

Peysurnar verða til sýnis á Grænfánahátíðum skólans föstudaginn 28.maí og þar verður hægt að kaupa peysur í minnstu stærðum (128 - 162) á meðan birgðir endast en einnig máta og panta peysur sem við ætlum að drífa í að fá til okkar.
Sérstakt tilboðsverð verður á þeim peysum sem við seljum á morgun og þær sem pantaðar verða nú í vor, 5700 krónur.
Hægt er að staðgreiða peysurnar (með peningum en ekki korti) við afhendingu eða pöntun, eða með því að fá reikningsnúmer og leggja svo inná við fyrsta tækifæri.
Við vonumst svo sannarlega eftir því að peysurnar mælist vel fyrir, hugmynd forráðamanna 4.bekkjar var góð og við erum mjög ánægð með peysuna, hver veit nema að við ráðumst í frekari landvinninga í skólafatnaði á næsta skólaári, en það ræðst auðvitað líka af viðtökunum nú í vor!


