Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Heim

Grænfánahátíð, vorsýning

Grænfánahátíð, vorsýning og bókamarkaður 

Föstudaginn 28. maí verður Grænfáninn afhentur í annað sinn í  Grunnskóla Snæfellsbæjar, í Ólafsvík og á Hellissandi.  

Ólafsvík: Afhending Grænfánans verður kl 11:00  Í framhaldi af því verður opið hús þar sem fram fer sýning á verkum nemenda og bókamarkaður undir formerkjum endurnýtingar. Á markaðnum verða einungis þrjú verð í gangi: 100, 200 og 300 kr og því hægt að gera mjög góð kaup.   

Hellissandur: Opið hús verður frá kl. 12:30 þar sem fram fer sýning á verkum nemenda. Afhending Grænfánans verður kl 13:00.     

Á morgun, fimmtudag, þurfa nemendur að koma með í skólann þá hluti og/eða verkefni sem þeir ætla að sýna á föstudaginn. Einnig minnum við ykkur á að skila náms- og bókasafnsbókum sem tilheyra skólanum.