Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Heim

Vorvika 5.-9. bekkjar 25.-28. maí

Þá eru prófin að baki og loksins komið að hinni langþráðu vorviku í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Nemendur 5.-9. bekkjar mæta samkvæmt stundaskrá kl. 8:30 í skólann þessa vikuna, en dagskrá lýkur kl. 13:15 alla dagana. Skólabíll fer til Hellissands kl. 13:20. Þeir nemendur sem eiga eftir að ljúka munum í valgreinum fá tækifæri til þess í vikunni. 10. bekkur verður í útskriftarferðalagi þessa daga. Það verður margt skemmtilegt í boði í vorvikunni, bæði innan húss og utan, svo nemendur þurfa að mæta klæddir til útiveru og með íþróttaföt þegar það á við. Stundatafla fer heim með nemendum í dag, föstudag og eru forráðamenn beðnir að fylgjast með því að nemendur fylgi þeirri áætlun varðandi útbúnað. Nemendur eiga að mæta í bekkjarstofur í fyrstu kennslustund alla morgna og verður vísað á stöðvar þaðan. Föstudaginn 28. maí verður svo vorsýningin okkar, afhending Grænfánans (Grænfánahátíð), bókamarkaður o.fl. spennandi á dagskrá í skólanum, nánar auglýst síðar.