Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Heim

Bókagjöf

Sólveig Karvelsdóttir og Sigurður maður hennar komu í heimsókn í 3.bekk í gær. Tilgangur heimsóknarinnar var að færa nemendum bókina Þrír vinir. Ævintýri litlu selkópanna eftir Karvel Ögmundsson, föður Sólveigar. Börn hans ákváðu að gefa nemendum 3. bekkja í Snæfellsbæ og í Njarðvíkurskóla bókina.  Karvel var fæddur á Hellu í Beruvík  og bjó hér til 31 árs aldurs er hann flutti til Njarðvíkur.

Bókin er um þrjá litla selkópa sem lenda í ýmsum ævintýrum í sjónum við Snæfellsnes og á Breiðafirði.

Við þökkum börnum Karvels Ögmundssonar fyrir gjöfina.