Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Heim Um skólann

Um skólann

Merki Grunnskóla SnæfellsbæjarGrunnskóli Snæfellsbæjar var stofnaður 1. ágúst 2004 þegar Grunnskólinn í Ólafsvík og Grunnskólinn á Hellissandi voru sameinaðir.  Árið 2005 var Lýsuhólsskóli sameinaður Grunnskóla Snæfellsbæjar. Vegna landfræðilegra og félagslegra aðstæðna er þar áfram rekinn heildstæður grunnskóli en með sameiginlegri yfirstjórn, fjársýslu og almennu samráði.

Skólaárið 2009 – 2010 eru 261 nemandi í skólanum, 22 í Lýsuhólsskóla, 115  á Hellissandi og 124 í Ólafsvík. Starfsmenn eru alls 70 og eru skipti milli starfsheita eftirfarandi: 5 stjórnendur, 36 kennarar og 29 starfsmenn.

Í skólahverfinu koma nemendur bæði úr dreifbýli og þéttbýli.  Nemendur dreifbýlis sunnan Fróðárheiðar eru fluttir í og úr skóla með skólabifreið á Lýsuhólsskóla, nemendur dreifbýlis norðan heiðar keyra forráðamenn á safnstöð skólabifreiðar í Ólafsvík.

Í Snæfellsbæ norðan fjalla er nemendum 1. – 4. bekkjar kennt á Hellissandi og  nemendum 5. – 10. bekkjar í Ólafsvík. Á báðum stöðum koma nemendur úr dreifbýli og þéttbýli. Í Lýsuhólsskóla eru nemendur í 1. - 10. bekk úr dreifbýli Snæfellsbæjar sunnan fjalla.

Stjórn skólans mynda skólastjóri, deildarstjóri 1. – 10. bekk  og deildarstjóri stoðþjónustu (öll í Ólafsvík), aðstoðarskólastjóri á Hellissandi og deildarstjóri í Lýsuhólsskóla.

Í skólanum eru sundlaugar á tveimur stöðum og íþróttahús, eða aðstaða til íþróttaiðkunar, á öllum starfsstöðvunum. Nemendur 1.- 4.bekkjar eru keyrðir til Ólafsvíkur í sundkennslu á námskeiðum sem standa sex vikur í senn tvisvar á skólaárinu.

Skólinn er þátttakandi í umhverfisverkefni Landverndar „Grænfáninn“. Starfsstöðvarnar í Ólafsvík og á Hellissandi fengu Grænfánann vorið 2008. Lýsuhólsskóli fékk Grænfánann fyrst 2003 og flaggar nú fánanum í fjórða sinn.

Einnig tekur skólinn þátt í tveimur  Comeniusarverkefnum en markmið með slíkum verkefnum er að styrkja samstarf milli evrópskra skóla með því að koma á sambandi milli nemenda, styrkja kennaraskipti og auka þekkingu á menningu og tungu annarra þjóða. Verkefnin eru styrkt af Evrópusambandinu.

Snæfellsbær samþykkti nýja skólastefnu haustið 2009, og í framhaldi af því fengu skólar bæjarins styrk úr Sprotasjóði til að búa til námsskrá og námsefni í Átthagafræði á árinu 2010.

Áherslur í skólastarfi

Í Grunnskóla Snæfellsbæjar er leitast við að miða skólastarfið við þroska og getu hvers og eins og að gera nemendur sjálfstæða í verki og hugsun. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða kennslu, mikið samstarf kennara og nemenda, stuðning við nemendur inni í bekkjum og einstaklingsbundið val nemenda og aukna ábyrgð þeirra á eigin námi.

Samstarfskennarar ákveða námsefni og kennsluaðferðir með tilliti til þess hvað nemendum hentar best, alltaf innan þess ramma sem Aðalnámskrá grunnskóla setur.

Í Lýsuhólsskóla er samkennsla árganga viðhöfð, sökum fámennis hverrar bekkjardeildar.  Skólaárið 2009 – 2010 er 1. – 4.bekk kennt saman, 5. – 7.bekk kennt saman og 8. – 10.bekk kennt saman, auk enn frekari samkennslu í verkgreinum.

Grunnskóli Snæfellsbæjar er í góðu samstarfi við stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök í sveitarfélaginu og bregðast þau vel við þegar til þeirra er leitað um samstarf. Foreldrafélag  og skólaráð eru starfandi við skólann. Bekkjarráð sjá um og skipuleggja afþreyingu fyrir nemendur.

Skólanefnd Snæfellsbæjar fundar um málefni skólans minnst einu sinni í mánuði og sitja fulltrúar kennara og stjórnenda þá fundi.

Markmið Grunnskóla Snæfellsbæjar eru:

-að öllum líði vel í skólanum og hafi jákvæða sjálfsmynd,

-að hver og einn setji sér markmið út frá eigin forsendum,

-að efla sjálfstæði, þekkingu og félagslega færni,

-að samskipti byggist á fordómaleysi og virðingu,

-að leggja áherslu á gott samstarf milli heimila og skóla.

GSNB-Olafsvík

GSNB-Lysuholsskoli

GSNB-Hellissandur