Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Aðalsíða Grunnskóla Snæfellsbæjar

Veikindaforföll beint í Mentor

Nú geta forráðamenn skráð veikindaforföll nemenda beint inn í Mentor. Aðgerðin er framkvæmd með því að fara inn á "Skrá veikindi" (undir Ástundun, efst til hægri), smella á blýantinn. Þá er tilkynningin komin til skila. Möguleiki er að skrá inn forföll fyrir 2 daga í einu. Óþarfi er að hringja í skólann til að tilkynna forföll ef þessi aðgerð er framkvæmd.
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 21. október 2009 09:07
 

Viðbragðsáætlun vegna svínaflensu

Í ljósi frétta að undanförnu um útbreiðslu H1N1 veirunnar á Íslandi vill ég benda á Viðbragsáætlun skólans sem finna má hér vinstra megin á heimasíðu skólans.

Viðbragðsáætlunin lýsir því ferli sem fer í gang innan skólans ef, og þá þegar, veiran hefur verið staðfest í Snæfellsbæ.  Öll viðbrögð skólans eru unnin í samráði við Heilsugæsluna í Ólafsvík og verður heimasíðan og www.mentor.is nýtt til upplýsingagjafar til nemenda, starfsfólks og forráðamanna.

Að lokum vill ég brýna fyrir öllum tilmæli frá heilbrigðisyfirvöldum um mikilvægi handþvottar til að hefta útbreiðslu smits. Við munum brýna nemendur skólans en mikilvægt er að sú umræða fari fram á heimavelli þeirra líka!

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. október 2009 19:34
 

Fundur Skólaráðs Grunnskóla Snæfellsbæjar

Þriðjudaginn 6.október var haldinn fyrsti fundur Skólaráðs Grunnskóla Snæfellsbæjar. Þar var ákveðið að fundargerðir ráðsins verði birtar á heimasíðu skólans til upplýsingar fyrir þá sem vilja fylgjast með starfi þess mikilvæga ráðs. Fundargerð fyrsta fundar er nú komin á vefinn, undir liðnum Útgáfa og eyðublöð
 

Sjálfsmatsskýrsla 2009

Nú er komið á netið undir liðnum Útgáfa og eyðublöð sjálfsmatsskýrsla sem unnin var skólaárið 2008-2009. Einnig má nálgast skýrsluna með að smella hér.
 

Skólastefna Snæfellsbæjar

Í dag stendur Skólanefnd Snæfellsbæjar fyrir kynningu á skólastefnu bæjarins, "Nám og náttúra að leiðarljósi".

Kynningin fer fram í Átthagastofu Snæfellsbæjar milli kl. 17 og 19 og er það von okkar sem störfum í skólanum að sem flestir komi í Átthagastofuna á þessum tíma og kynni sér stefnuna sem við teljum afar metnaðarfulla og muni leiða af sér enn betra skólastarf í bæjarfélaginu okkar!

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 07. október 2009 09:40
 


Síða 13 af 15