Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Aðalsíða Grunnskóla Snæfellsbæjar

Námskeið fyir forráðamenn nemenda í 1.bekk

Næstkomandi þriðjudagskvöld, 24.ágúst kl. 19:30 verður námskeið fyrir forráðamenn nemenda í 1.bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar skólaárið 2010 - 2011.

Á námskeiðinu er farið yfir ákveðin grundvallaratriði skólastarfsins og kynnt verkefni fyrsta vetrarins hjá nemendum, með sérstakri áherslu á lestrarnám og líðan.

Námskeiðið stendur til u.þ.b. 22:00 og vonumst við til að sjá sem flesta foreldra!

 

Skólasetning

Skólasetning Grunnskóla Snæfellsbæjar skólaárið 2010 - 2011 verður föstudaginn 20.ágúst.

Kl. 13:00 í Lýsuhólsskóla.

Kl. 15:00 fyrir 5. - 10.bekk í húsnæði grunnskólans í Ólafsvík.

Kl. 16:00 fyrir 1. - 4.bekk í húsnæði grunnskólans á Hellissandi.

Í tengslum við skólasetningu norðan Fróðárheiðar verður skólaakstur fyrir þá nemendur sem þess óska.

Rúta fer frá Hellissandi kl. 14:40, frá Ólafsvík kl. 15:40 og frá Hellissandi að loknum skólaslitum kl. 16:40.

 

Innkaupalistarnir og matseðill í ágúst

Innkaupalistar fyrir Grunnskóla Snæfellsbæjar eru nú komnir inn á vefinn og má nálgast með því að smella á viðkomandi bekki hér vinstra megin á síðunni.

Listarnir eru viðmið um það sem búast má við að nemendur þurfi að eiga í námi sínu í vetur, þeir hafa verið yfirfarnir rækilega nú í vor, með það fyrir augum að einfalda þá og auka hagræðingu. 

Skólinn skorar á forráðamenn að nýta það sem nemendur eiga frá síðasta skólaári, í samræmi við áherslur skólans varðandi endurnýtingu! 

Fara vel yfir stílabækur og pennaveski!

Matseðill fyrir ágúst er líka kominn á síðuna.  Skráning nemenda í mötuneytið fer fram 23. og 24.ágúst, en þá daga verður öllum nemendum boðið upp á heita máltíð í hádeginu.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 10. ágúst 2010 11:28
 

Eyðublöð

Eyðublöð fyrir skráningu í mötuneyti skólans, sem og í Skólabæ hafa nú verið uppfærð og liggja á heimasíðu skólans, undir liðnum "Útgáfa og eyðublöð" hér til vinstri.

Athygli er vakin á því að nú hefur skólinn ákveðið að lágmarka útprentun þessara eyðublaða sem hluti af endurvinnslustefnu sinni og því verður eyðublöðunum ekki dreift til allra nemenda

Forráðamenn geta nú sent upplýsingar sem fram koma á eyðublöðunum með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og þá þurfa einfaldlega að koma fram þær upplýsingar sem óskað er eftir í tölvupóstinum, þ.e. sú þjónusta sem óskað er eftir og á hvaða dögum.

Í nánustu framtíð er ætlunin að setja inn eyðublöð sem hægt verður að vista niður á heimilistölvur, fylla út og senda til okkar.

Mánudaginn 23.ágúst munu umsjónarkennarar þó senda heim blöð til þeirra nemenda sem ekki hafa skilað umsóknum um viðkomandi þjónustu.

 

Skrifstofa skólans opin

Skrifstofa Grunnskóla Snæfællsbæjar opnar að loknu sumarleyfi þriðjudaginn 10. ágúst.

Þaðan frá verður skrifstofan opin milli kl. 8 og 16.

Síðast uppfært: Mánudagur, 09. ágúst 2010 14:18
 


Síða 2 af 15