Í dag áttu nemendur 1. 4. bekkjar og starfsfólk saman yndislega stund. Við héldum stofu og litlujólin okkar. Dagurinn hófst á því að hver bekkur var í sinni stofu með umsjónarkennara þar lásum við jólasögu, skoðuðum jólkortin okkar, skiptumst á pökkum og áttum skemmtilega stund saman sem endaði á því að við fengum okkur kakó og skúffuköku. Að þessu loknu fórum við öll fram á sal og þar skemmtum við hvert öðru. 1. bekkur söng Skín í rauður skotthúfur, 2.bekkur söng Litla jólabarn og spilaði Nanna undir á píanó. 3.bekkur sýndi helgileik. 4.bekkur sýndi og las fyrir okkur Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum. Barnakórinn söng svo 2 lög í lokin, Skreytum hús með greinum grænum og Ég sá mömmu kyssa jólasvein. Við dönsuðum svo í kringum jólatréð og sungum. Við fengum góða gesti en þeir Hurðaskellir og Giljagaur komu,dönsuðu og sungu með okkur og gáfu okkur svo mandarínur áður en þeir fóru. Allir fóru svo glaðir og ánægðir heim í lok dags með jólanammi í munni.



