Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Aðalsíða Grunnskóla Snæfellsbæjar

Fréttir frá 3. og 4. bekk

Í haust hafa nemendur í 3. og 4. bekk  verið að vinna samfélagsfræðiverkefni í hringekju.Verkefnið sem þau tóku fyrir var lífið á Íslandi áður fyrr. Verkefnin voru margvísleg og unnin á sjö stöðvum. Þau voru í leiklistaræfingum og bjuggu til stuttan Víkingaleikþátt. Horfðu á myndband um þjóðveldisbæinn.  Bjuggu til gamlan pappír og skrifuðu með fjöðrum.  Lærðu gamla leiki, fjallað var um leggi og skeljar og gömlu mánuðina í tengslum við það. Á smíðastöðinni unnu þau sameiginlega hluti sem notaðir voru áður fyrr og verða í eigu skólans. Nemendur bjuggu til torfbæi, dýr og myndir af því hvernig þau sjá umhverfið á Íslandi áður fyrr. Í þessa vinnu endurnýttu þau umbúðir utan af morgunkorni og fleiri matvælum í anda Grænfánaverkefnis okkar.

 

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 13. janúar 2010 16:22
 

Geðhjálp með fyrirlestur

Miðvikudaginn 13.janúar fengu nemendur 10.bekkjar í Ólafsvík heimsókn.

 

Þá kom til þeirra Sigursteinn Másson frá Geðhjálp og ræddi við krakkana um mikilvægi þess að passa upp á geðheilsu sína.  Fór hann yfir tengsl sjálfsvarnar í geðheilsu í samræmi við aðra þekkta sjálfsvörn og höfðu nemendur mikið gagn og gaman af heimsókn hans.

 

Heimsókn hans kom í kjölfar styrktartónleika í Snæfellsbæ í desember síðastliðnum og þakkar skólinn aðstandendum tónleikanna og Sigursteini Mássyni sjálfum vel fyrir þessa góðu heimsókn!

 

Smellið á nánar til að sjá myndir frá kynningunni
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 14. janúar 2010 10:53 Nánar...
 

Matseðill janúar

Þá er kominn matseðill fyrir janúar, hann má nálgast á sínum stað hér til hliðar.

Vakin er athygli á gjaldskrár breytingum í mötuneyti sem tóku gildi nú um áramótin. Um er að ræða 5% hækkun á áskriftarverði en 12,5% hækkun á lausum miðum.

Því miður varð sú hækkun að koma til vegna gríðarlegra hækkana í innkaupum.

 

Skólahald byrjar eftir jólafrí

Kæru nemendur, foreldrar og forráðamenn. Gleðilegt ár og takk fyrir árið sem er nú liðið. Vonum að allir hafi haft það gott yfir hátiðirnar.

Skólinn mun hefst samkvæmt stundaskrá á morgun, þriðjudaginn 5. janúar.

Síðast uppfært: Mánudagur, 04. janúar 2010 15:36
 

Jólakveðja frá Grunnskóla Snæfellsbæjar

Grunnskóli Snæfellsbæjar óskar öllum starfsmönnum sínum, nemendum og forráðamönnum, gleðilegra jól og farsældar á nýju ári!

Við hlökkum mikið til að hafa gaman saman og gera góðan skóla enn betri á nýju ári um leið og við minnum á að skólinn hefst að loknu jólaleyfi þriðjudaginn 5.janúar samkvæmt stundaskrá! 

Síðast uppfært: Mánudagur, 04. janúar 2010 11:07
 


Síða 9 af 15