7. bekkur er búinn að vera í stífum æfingum fyrir Stóru upplestrarkeppnina en undankeppni hennar verður mánudagskvöldið 1. mars kl. 19:00 í sal grunnskólans í Ólafsvík. Krakkarnir munu lesa upp hluta úr sögunni Sossa eftir Magneu frá Kleifum og valin ljóð. Dómnefnd mun velja þrjá einstaklinga til að taka þátt í aðalkeppninni sem haldin verður í Grundarfirði 10. mars nk. tímasetning verður auglýst síðar.
Myndir væntalegar á síðuna fljótlega.


