Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Aðalsíða Grunnskóla Snæfellsbæjar

Árshátíð 1. - 4. bekkjar

Árshátíð nemenda 1. - 4. bekkjar verður haldin miðvikudaginn 17. mars kl. 17:00 í Félagsheimilinu á Klifi.

Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

Rútan fer frá Hellissandi kl 16:15 og til baka að lokinni árshátíðinni um kl. 18:00.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 16. mars 2010 12:35
 

Stóra upplestrarkeppnin

Lokahátíðin á Snæfellsnesi fór fram í Grundarfjarðarkirkju í gærkvöldi. 9 fulltrúar frá grunnskólunum á norðanverðu Snæfellsnesi lásu til úrslita, 3 frá hverjum skóla. Allir keppendur fengu ljóðabók eftir Þorstein frá Hamri að gjöf. Sparisjóður Ólafsvíkur gaf peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin, Mjólkursamsalan í Búðardal og Brauðgerð Ólafsvíkur gáfu veitingar. Nemendur stóðu sig allir mjög vel og var ekki auðvelt fyrir dómarana að velja þrjá úr þessum frambærilega hópi.

Úrslitin urðu þau að Silja Katrín Davíðsdóttir, Stykkishólmi varð í fyrsta sæti, Marteinn Gíslason, Snæfellsbæ í öðru sæti og Brimrún Birta Friðþjófsdóttir, Snæfellsbæ í þriðja sæti.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 04. maí 2010 17:17 Nánar...
 

Forkeppni upplestrarkeppninar

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar var haldin mánudagskvöldið 1. mars síðastliðinn. Nemendur úr 7. bekkjunum ÁGS og GJS lásu texta upp úr bókinn „Sossa“ eftir Magneu frá Kleifum og valin ljóð. Foreldrar buðu svo upp á glæsilegar veitingar á meðan dómnefnin valdi þrjá nemendur og tvo til vara til að taka þátt í lokakeppninni þann 10. mars sem haldin verður í Grundarfjarðarkirkju.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 03. mars 2010 16:29 Nánar...
 

Kynning á niðurstöðum Olweusarkönnunar

Næstkomandi miðvikudag, 10.mars, mun Þorlákur Helgason sem er yfirmaður Olweusarverkefnisins á Íslandi kynna niðurstöður Olweusarkönnunar í Grunnskóla Snæfellsbæjur.

Kynning hans fyrir forráðamenn verður í skólahúsnæðinu í Ólafsvík og hefst klukkan 18:00.

Foreldrar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðu um enn betra starf gegn einelti.

Saman erum við sterkari!!!!!

 

Foreldradagur 2.mars

Minnt er á að þriðjudaginn 2.mars næstkomandi er foreldradagur í Grunnskóla Snæfellsbæjar.

Þann dag fellum við niður hefðbundið skólastarf og forráðamenn koma í viðtöl við umsjónarkennara ásamt börnum sínum.

Síðast uppfært: Föstudagur, 26. febrúar 2010 13:56
 


Síða 7 af 15