Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Aðalsíða Grunnskóla Snæfellsbæjar

Skíðaferðalag 8. -10.bekk

Nemendur 8. - 10. bekkjar eru lagðir af stað heim úr skíðaferðinni og verða komin heim um fimmleytið. Þar sem verður var ekki gott var ákveðið að fara fyrr heim en áætlað var.
Síðast uppfært: Föstudagur, 16. apríl 2010 10:42
 

Skíðaferð

Í gær, miðvikudaginn 14.apríl héldu 46 nemendur úr8. - 10.bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar til Dalvíkur í skíðaferð.

Krakkarnir fengu styrki frá fyrirtækjum til að fara í ferðina og er þeim fyrirtækjum þakkað sérstaklega hlýr hugur.  Krakkarnir voru komnir norður um kl 16 og hófu þá strax skíðaiðkunina fram á kvöld.

Í morgun héldu þau áfram að skíða og skemmta sér vel í góðum hópi.  Lyfturnar á Dalvík eru opnar í dag, en færið er blautt.  Það er ekkert að angra krakkana sem eru ákveðin í að hafa gaman saman.

Þau munu halda aftur heim á leið um hádegisbil á morgun, föstudag, og verða nánari fréttir af heimkomu þeirra birtar hér á síðunni um leið og þær skýrast.

 

Árshátíð 5.-7. bekkjar

Árshátíð 5.-7. bekkjar verður haldin í Félagsheimilinu Klifi, þriðjudaginn 23. mars kl. 18:30.

Nemendur eiga að mæta kl. 18:00. Að loknum skemmtiatriðum verður diskótek fyrir nemendur 5.-7. bekkjar. Rúta fer frá Hellissandi kl. 17:40 OG TIL BAKA AÐ LOKNU DISKÓTEKI (um kl. 21:00).

Allir eru velkomnir.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 23. mars 2010 15:43
 

Velkomin úr páskafríi!

Þá eru allir komnir aftur, skellihlæjandi eftir gott frí!

Framundan er síðasti sprettur skólaársins 2009 - 2010 og við hefjum hann með bros á vör!

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 08. apríl 2010 13:44
 

Átthagafræði í skólum Snæfellsbæjar

Nú um áramót fengu skólarnir í Snæfellsbæ styrk úr Sprotasjóði Menntamálaráðuneytisins til verkefnisins „Átthagafræði í skólum Snæfellsbæjar“.  Styrknum er ætlað að styðja uppbyggingu átthagafræði í skólunum, með sérstakri áherslu á upplifun nemenda og aukinni samvinnu milli skólastofnana.

Segja má að hugmyndin að verkefninu hafi kviknað í framhaldi af vinnu við skólastefnu Snæfellsbæjar.  Í þeirri vinnu var lögð mikil áhersla á að nám í skólunum taki ríkulega mið af heimabyggð sinni á sem víðastan máta.  Forvinna við umsóknina var í höndum skólastjórnendanna sem gengu frá umsókn í nóvember þar sem tilgreind voru markmið með verkefninu og tímaáætlun.

Í febrúar var svo skipað í þverfaglegt teymi með fulltrúum grunnskólanna, leikskólanna og tónlistarskólans og verður verkefnastjórnin í þeirra höndum.

Átthagafræði á sér langa sögu í íslensku skólakerfi, en þó með viðkomu í mörgum námsgreinum og á mismunandi aldri.  Fyrsta verkefni skólanna er að taka saman það sem verið er að gera og tengist heimabyggðinni okkar.  Er þar bæði verið að tala um bókleg verkefni á hefðbundinn máta, en einnig upplifun eins og t.d. vettvangsheimsóknir hvers konar eða þátttaka í verkefnum eins og matjurtargarði eða tiltekt á skólalóð.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 18. mars 2010 09:46 Nánar...
 


Síða 6 af 15