Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Aðalsíða Grunnskóla Snæfellsbæjar

Hópastarf í 3. og 4. bekk

Undanfarnar vikur hafa 3. og 4. bekkur verið að vinna verkefni um sólkerfi okkar. Bekkjunum hefur verið skipt í 7 hópa sem vinna verkefni á jafnmörgum stöðvum. Á stöðvunum eru nemendur að leita sér upplýsinga um reikistjörnurnar, skoða myndband og læra lag um röð reikistjarna frá sólu. Skoða stjörnumerkið sitt og stinga út mynd af því, fræðast um stjörnuspeki, búa til líkan af sólkerfinu og læra um tungl jarðarinnar og gera tilraunir tengdar því. Einnig læra þau sérstaklega um lagskiptingu jarðar, jarðskjálfta og fleira tengt jörðinni. Að lokum fræðast þau um geimferðir og gera líkan af geimfari. Nemendur hafa verið mjög áhugasamir í þessari vinnu en henni lýkur um miðjan maí. Foreldrar geta séð afrakstur verkefnisins á vorsýningu í lok skólaárs.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 05. maí 2010 09:15 Nánar...
 

Breyting á skóladagatali

Breyting hefur orðið á skóladagatali skólaársins 2009 - 2010.

Kemur hún til vegna breytinga á fyrirkomulagi árshátíða, auk þess að skólinn telur breytingarnar koma til móts við hugmyndir forráðamanna varðandi skólaslit og útskrift nemenda.

Breytingin er eftirfarandi:

Fimmtudagurinn 3.júní verður síðasti skóladagur nemenda í stað föstudagsins 4.júní.

Starfsdagar kennara hefjast þá 4.júní og lýkur 8.júní.

Nánari fréttir af fyrirkomulagi skólaslita munu berast forráðamönnum um miðjan maí.

Síðast uppfært: Föstudagur, 30. apríl 2010 13:04
 

Dagur umhverfisins

Nú er komið að því að halda upp á Dag umhverfisins en það gerum við föstudaginn 23. apríl næstkomandi og munu nemendur vinna hluta úr skóladeginum að ýmsum verkefnum tengdum umhverfinu.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 04. maí 2010 17:23 Nánar...
 

Bekkjarfundir vegna Olweusar-könnunar

Vikuna 26. - 30.apríl verða kynningarfundir vegna niðurstaðna Olweusarkönnunar frá í vetur. 

Á sama tíma verður hægt að spjalla um bekkjarstarf vetrarins og um leið byrja að skipuleggja næsta vetur!

Tímasetningar fundanna eru:

Mánudagur 26. apríl kl. 17:00 - 5.bekkur SJ

Mánudagur 26. apríl kl. 18:00 - 6.bekkur SJS

Miðvikudagur 28. apríl kl. 17:00 - 7.bekkur GJS og ÁGS

Miðvikudagur 28. apríl kl. 18:00 - 8.bekkur EK

Fundirnir eru haldnir í stofu 5 í skólanum í Ólafsvík, vonumst til að sjá sem flesta. 

 

Skíðaferð

46 nemendur af unglingastigi fóru til Dalvíkur í skíðaferð dagana 14. -16. apríl. Strax við komuna skelltu flestir sér upp í fjall og skíðað var langt fram á kvöld. Daginn eftir var skíðað og margir skelltu líka sér í sund. Skíðafærið var ekki með besta móti en krakkarnir létu það ekki stoppa sig og fóru margar ferðir upp í fjall. Ferðin var vel heppnuð í alla staði og stóðu krakkarnir sig vel á skíðum og brettum.

Staðarhaldarar hrósuðu krökkunum mikið fyrir framkomu og umgengni og það má segja að krakkarnir hafi verið sér og sínum skóla til sóma.

Myndir úr ferðinni koma síðar. 

 

 

 

Síðast uppfært: Mánudagur, 19. apríl 2010 12:53
 


Síða 5 af 15