Föstudagur, 21. maí 2010 10:35
Vilborg Lilja Stefánsdóttir
Þá eru prófin að baki og loksins komið að hinni langþráðu vorviku í Grunnskóla Snæfellsbæjar.
Nemendur 5.-9. bekkjar mæta samkvæmt stundaskrá kl. 8:30 í skólann þessa vikuna, en dagskrá lýkur kl. 13:15 alla dagana. Skólabíll fer til Hellissands kl. 13:20. Þeir nemendur sem eiga eftir að ljúka munum í valgreinum fá tækifæri til þess í vikunni. 10. bekkur verður í útskriftarferðalagi þessa daga.
Það verður margt skemmtilegt í boði í vorvikunni, bæði innan húss og utan, svo nemendur þurfa að mæta klæddir til útiveru og með íþróttaföt þegar það á við. Stundatafla fer heim með nemendum í dag, föstudag og eru forráðamenn beðnir að fylgjast með því að nemendur fylgi þeirri áætlun varðandi útbúnað.
Nemendur eiga að mæta í bekkjarstofur í fyrstu kennslustund alla morgna og verður vísað á stöðvar þaðan.
Föstudaginn 28. maí verður svo vorsýningin okkar, afhending Grænfánans (Grænfánahátíð), bókamarkaður o.fl. spennandi á dagskrá í skólanum, nánar auglýst síðar.
Síðast uppfært: Föstudagur, 21. maí 2010 10:46
Fimmtudagur, 13. maí 2010 11:04
Lilja
Þá er próftaflan fyrir þessa önn komin á vefinn. Prófin fara fram í næstu viku (17-20. maí) frá mánudegi til fimmtudags.
Vinsamlegast kynnið ykkur fyrirkomulag þeirra með að smella hér til að fá prentvæna útgáfu eða með að smella á nánar hnappinn til að lesa beint af vefnum
Gangi ykkur öllum vel í prófunum.
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 13. maí 2010 14:29
Nánar...