Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Aðalsíða Grunnskóla Snæfellsbæjar

Einnota matvælaumbúðir

Þann 1.febrúar síðastliðinn tóku gildi breytingar á vinnu skólans í Ólafsvík vegna einnota matvælaumbúða sem nemendur koma í skólann með að heiman.

Þeim breytingum er stjórnað af umhverfisnefnd og eiga rætur í því markmiði nefndarinnar að auka umhverfisvitund í samfélaginu okkar.  Áður var tekið við slíkum umbúðum, þær skolaðar og síðan skilað flokkuðum til sorpstöðvar en nú hefur verið tekin ákvörðun um að þeir nemendur sem taka slíkar umbúðir með sér í skólann fari með þær heim í lok skóladagsins og heimili þeirra taki ákvörðun um förgun þeirra.

Einnota umbúðir eru  þess eðlis að minnka þarf notkun þeirra eins og kostur er.  Með þessari breytingu vonumst við til að vekja umræðu og umhugsun á meðal okkar í bænum varðandi notkun þessara umbúða og mögulega þannig verða til að minnka notkun þeirra.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 08. febrúar 2012 11:59
 

Skákdagurinn 2012

Skákdagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land fimmtudaginn 26. janúar, á afmælisdegi Friðriks Ólafssonar fyrsta stórmeistara Íslands.

Í Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík var haldið fjöltefli þar sem tveir meistarar frá Skákfélagi Snæfellsbæjar, þeir  feðgar Gylfi og Sigurður Scheving, tefldu við nemendur 5. – 10. bekkjar. Um  60 nemendur skráðu sig í fjölteflið. Ekki tókst að ljúka nema um helmingi skákanna innan þess tíma sem gefinn var en þá voru þeir feðgar enn ósigraðir.

Á sama tíma var skákkennsla fyrir byrjendur og nýttu fjölmargir nemendur sér það og höfðu gagn og gaman af.

Við þökkum Gylfa og Sigurði fyrir komuna og aðstoðina við að gera þennan dag eftirminnilegan.

                                

Síðast uppfært: Mánudagur, 30. janúar 2012 10:49
 

Góðir hálsar

Nemendum 9. og 10. bekkja var boðið í leikhús á dögunum, enda ekki á hverjum degi sem við eigum þess kost að sjá leikverk hér innan bæjar. Þau sáu sýninguna Góðir hálsar í Frystiklefanum á Rifi. Það var nokkur spenningur í hópnum þegar við mættum í leikhúsið, einhverjir höfðu séð sýninguna áður og aðrir heyrt talað um hana! 

Axlar-Björn er eldri nemendum í GSNB vel kunnur. Umfjöllun um hann tengist Átthagafræðinámskránni bæði í 9. og 10. bekk, þannig að þau þekktu flest sögusvið og persónur leikverksins. Sýningin var mögnuð í alla staði og í lok sýningar settust leikararnir niður með nemendum, ræddu tilurð sýningarinnar og ýmislegt í tengslum við leiklistina.

Lista- og menningarnefnd Snæfellsbæjar styrkti leikhúsferðina sem heppnaðist mjög vel, þrátt fyrir nokkurn kulda og rafmagnstruflanir!

Við þökkum aðstandendum sýningarinnar og Lista- og menningarnefnd kærlega fyrir okkur.

                                            

Síðast uppfært: Föstudagur, 27. janúar 2012 09:47
 

Fréttaskot frá umhverfisstarfi GSNB í Ólafsvík

Skólaárið 2011-2012 hófst með krafti hjá Umhverfisnefndinni. Búið er að halda tvo fundi með fulltrúum bekkjanna og farið yfir merkingar í skólastofum  og á vinnusvæðum viðsvegar um skólann. Þetta eru merkingar á borð við  „spörum rafmagnið“, vatnið og sápuna. Mikilvægt er að halda áfram að reyna að gera vel og fá nemendur til að sýna ábyrgð og samstöðu í umhverfismálum skólans. Jafnframt var farið yfir reglur um flokkun á rusli og könnuðu nemendur  hvort ekki væru til staðar kassar fyrir flokkun á blöðum og pappír á þeim stöðum sem þeirra er þörf.

Í desember s.l. voru fest kaup á útiskúr til að geyma verkfæri skólans sem nemendur nota við plöntun og aðra útikennslu. Endanleg ákvörðun um staðsetningu og uppsetning skúrsins verður frmkvæmd á vordögum. Skúrinn á að aðvelda bæði nemendum og starfsfólki aðgengi  að verkfærum og þeirra gagna sem nota á við útikennslu.

Ákveðið hefur verið að vinna áfram að nýjum Grænfána og endurnýjun á honum vorið 2012. Unnið verður áfram að þeim markmiðum sem ligga fyrir og nýjum markmiðum bætt við. Skolun einnota drykkjarumbúða og plástíláta er enn í gangi en til stendur að hætta þeirri vinnu um áramót. Á nýju ári hefur skólinn einsett sér að minnka sorphirðukostnað og ætlum við að draga úr sorpi sem hlýst af einnota umbúðum.  Því hefur verið ákveðið að banna að nemendur komi með einnota umbúðir í skólann. Ef nemendur koma með slíkar umbúðir, þá þurfa þær að fara heim aftur.

Grunnskólinn og Skógræktarfélag Ólafsvíkur hefur hafið samstarf og verið er að vinna að skipulagi á verkefnum sem vinna á að í samstarfi við Skógræktarfélagið. Þann 12. desember s.l. var haldinn fundur með fulltrúm Snæfellsbæjar, Skógræktarfélagsins og Grunnskólans. Fundurinn gekk vel og lofar góðu um framhaldið. Með samstarfinu er hægt að tengja enn betur saman umhverfisstarfið og nýja námskrá skólans í Átthagafræði.  Vinnan er á frumstigi og er þetta langtíma markmið sem þarf að þróa.  Mikil vinna liggur í undirbúningi og skipulagi á svæði sem nota á undir óhefðbundna kennslu.

 

Umhverfisnefndin  

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 11. janúar 2012 16:11
 

Litlu jólin á þriðjudag

Þriðjudagurinn 20.desember er síðasti kennsludagur fyrir jólafrí og þá verða "Litlu-jólin" í skólanum.

Nemendur á yngsta stigi (1. - 4.bekk) mæta á hefðbundnum tíma kl. 8:40 og er því skólaakstur hjá þeim með hefðbundnu sniði.  Skemmtun þeirra stendur til kl. 12:00 og verða rútur til Ólafsvíkur að dagskrá lokinni kl. 12:10.

Minnt er á að gæsla á yngsta stigi, Skólabær, er opinn þann dag fyrir þau börn sem eru skráð í gæsluna.

Miðstigið hefur daginn kl. 9:00 og fer rúta frá Hellissandi kl. 8:40.  Unglingastigið hefur daginn kl. 10:10 og fer rúta frá Hellissandi kl. 9:50.

Skemmtanir í Ólafsvík standa til 11:50 og fer rúta út á Hellissand kl. 12:00.

 

Eftir morgundaginn hefja nemendur svo sitt jólafrí, sem stendur til fimmtudagsins 5.janúar.  Þann dag hefst skólinn samkvæmt hefðbundinni stundatöflu.

Síðast uppfært: Mánudagur, 19. desember 2011 16:19
 


Síða 1 af 27